15september

Dáin

já dáin

15. september 2006 klukkan 21:07
Hverjar
2 athugasemdir
24ágúst

BÚ! brá þér?


Ég er orðin frekar mikið þreytt á því að sjá alltaf alla sætu og skemmtilegu gaurana með leiðinlegu gellunum (sorrí, en þetta er staðreynd...ekki gráta samt). Útlitið skiptir ekki öllu máli og ég er sammála því en málið er að þær sem ég er að tala um eru bara ekkert alltof skemmtilegar heldur. Af hverju þær? Af hverju ekki bara við? Svariði því!!
Ég var líka að velta því fyrir mér hvað við eigum stressandi tíma framundan. Hvað ef við finnum aldrei þann eina rétta? Eða bara einhvern yfir höfuð? Neyðumst við þá til að selja okkur á Ebay undir leitaorðinu Iceland-Special?


-ég má vera bitur

24. ágúst 2006 klukkan 01:03
Hverjar
Engin athugasemd
01ágúst

Guðrún Sóley's and Hera's song

Vá, Hera var að minna mig á lagið okkar og núna hlakkar mig bara til þess að byrja í skólanum. Sjæse

THAT'S FUCKING TEAMWOOOOORK

Guðrún Sóley
hérna hægra megin------------------------------------------>
01. ágúst 2006 klukkan 03:26
Hverjar
Engin athugasemd
29júlí

disco dance

Bári litli er dáinn. Hann var dáinn þegar ég kom heim í fyrradag. Lá lítill og sætur á botninum í búrinu sínu. Blessuð sé minning hans.

Síðasti dagurinn í vinnunni í dag. Fer svo í aðra á þriðjudaginn svo ég hef allavega langt helgarfrí. Hulda kom í bæinn í gær og við skelltum okkur í kfc og héldum svo í búðarleiðangur. Keypti mér skó og peysu og bolla og kúludót til að hengja í glugga, voðalega smekklegt. Hulda heldur að það sé ótrúlega kúl að finna upp nýjar leiðir að hlutunum svo hún tók uppá því að skríða inn um skottið á bílnum fyrir utan smáralind, kringluna og fjörð (?!). Einnig tók hún uppá því að kenna mér öll helstu blótsyrði í umferðinni, sem er ansi gott því að sjálfsögðu vil ég vera umferðarhænsni. Fórum svo á kaffihús og beint heim að éta snakk og horfa á vídjó. Í morgun vaknaði ég ferskari en allt, fór í vinnuna og steinsofnaði. Skelltum okkur á kaffihús í hádeginu og átum á okkur gat, stórt gat. Fór aftur í vinnuna og lauk síðasta deginum. Hulda kom heim fallegri en fyrr með splunkunýja klippingu, pítur og náttborð. Skoðuðum hárið, átum píturnar og settum saman hilluna. Það tók aðeins lengri tíma en við bjuggumst við enda eru Ikea-sjálfshjálparsamstæðurnar ekki beint það sem mannig langar að gera í tímaþröng. Brutum lampa og glas og dönsuðum disco dansinn sem er sá allra heitasti í dag (ath kennsla:
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=587 )
Hún fór svo aftur í sveitina núna rétt áðan og ég er strax farin að sakna hennar...en svona er lífið víst og hún kemur von bráðar aftur.

                    
                           Hulda says: Fokking aaiii maður!

-gs
29. júlí 2006 klukkan 02:31
Hverjar
Engin athugasemd
25júlí

oh my darling...



BRUMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM BRUMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM

er orðin hörkudriver og farin að taka hina í óæðri endann eins og ekkert sé. sjáumst á rúntinum félagi

25. júlí 2006 klukkan 04:28
Hverjar
2 athugasemdir
20júlí

Iko iko an ney



Ég held ég sé haldin undarlegum sjúkdómi. Þeir sem eru viðkvæmir, og eða halda að ég sé voðalega settleg ung dama, vinsamlegast ekki lesa áfram. Var í vinnunni í síðustu viku að lita í litabók (mjög krefjandi starf) þegar ég allt í einu fann fyrir þrýstingi í nefinu á mér. Mér datt í hug að ég væri kannski að fá blóðnasir í fyrsta sinn og strauk því um nefið en ekkert kom. Ég hélt áfram að lita og fann þrýstingin aukast. Ég saug upp í nefið og neibb það var ekki stíflað. Eftir smá stund byrjaði allt í einui VATN að fossa úr nefinu á mér. Greip um nefið og lófinn fylltist af vatni. Jafn skjótt og rennslið byrjaði hætti það og ég starði furðu lostin á litabókina sem var útslett í vatni.  Börnunum í kringum mig fannst þetta ekkert merkilegt heldur hlógu bara að ópunum í mér og vældu yfir því að ég væri búin að eyðileggja blaðsíðuna í litabókinni.
Sé það alveg fyrir mér að þetta endurtaki sig á balli, tónleikum eða miðri leiksýningu. Oj.

-nafnlausi einstaklingurinn
20. júlí 2006 klukkan 01:10
Hverjar
Engin athugasemd
17júlí

BRUMMMMMMMMMMMMMM BRUMMMMMMMMMMMMMMM

Já, það er rétt. Guðrún Sóley ---dóttir er að fara að kaupa sér bíl. Og það engan slor bíl, heldur netta þétta og undralétta Mini Rover loverboj.




ég elska hann og hann elskar mig. held ég hafi aldrei verið í svona skilningsríku sambandi. fer örugglega að hitta hann á morgun, og vonandi kaupa hann líka.

var að koma úr bústað...fórum í bíltúr á aðalstaðinn, Hvammstanga og vá mér leið eins og Palla sem var einn í heiminum. Það var nákvæmlega ALLT lokað og ekki ein einasta manneskja á ferðinni...nema ein. Sáum konu í fjarska og keyrðum í átt að henni til að spyrjast fyrir um Prjónasetrið (mjög töff) og ÓMÆGAD af ÖLLUM manneksjum í HEIMINUM þurfti það að vera helvítis spænskubeyglan.

-guðrúnsóley

17. júlí 2006 klukkan 03:58
Hverjar
2 athugasemdir
09júlí

Vonbrigði

Í tilefni af því að  ég á mér ekki líf og hef ekkert annað við tímann að gera en að leysa ömurleg próf á netinu þá ætla ég að sýna ykkur niðurstöðurnar úr celebmatch sem, satt að segja, stóðust á engan hátt væntingar mínar og vonir um hinn eina sanna Johnny Depp og tengslin á milli okkar sem eru, þrátt fyrir mikla fjarlægð og mörg fjöll, afar sterk þessa stundina. (þetta er án efa lengsta setning sem ég hef nokkurn tíma skrifað, og klapp fyrir því)

physical 68%
emotional 33% kjaftæði
intellectual 65% nokkuð gott
total 56% pff

hins vegar þá er einhver glataður Carmelo Anthony að gera hosur sínar grænar fyrir mér þessa dagana. Kappinn er leikmaður í NBA og gengur með svitaband á hausnum, mjög töff.


Carmelo Anthony

98%



Sá næsti í röðinni er hjartaknúsarinn og kynbomban sjálf sem við þekkjum öll úr Malcom in the Middle sem stóra bróður Malcom, og það er að sjálfsögðu Justin Berfield


Justin Berfield

95%



Hér sjáum við kappann með hinn unaðslega Roger í fanginu. Gef honum eina stjörnu af tíu, fyrir viðmótið

Næstur á svið er stórnafn sem við könnumst öll við, Jim Bakkum sem, eins og allir vita, er afkvæmi Justin Timberlakes og Michael Jackson. Athugið að ekki hefur verið átt við myndina, siriously...gaurinn er svona


Jim Bakkum

88%


Þess má geta að Jim Bakkum tók einnig þátt í Idol en datt því miður út fyrir lélega rödd og glataðan dansstíl...spurning hvaðan hann fékk það?



Við höldum okkur við Idol keppendurna sem virðast vera óðir í mig þessa dagana og næstur á svið er sjálfur Kaleb Simmonds



Kaleb Simmonds

88%



Okei...ágætis gaur þarna á ferð en oó þetta er, því miður fyrir hann en sem betur fer fyrir mig, MJÖG góð mynd...við skulum kíkja á aðra


ég er farin að efast stórlega um kynhneigð hans

Síðastur en þó alls ekki sístur er sirkusdýrið Robinho Robson de Souza sem, eins og nafnið gefur til kynna, leggur kapp á boltagleypingar



Robinho Robson de Souza

84%


Hér sjáum við kappann að störfum, sá heldur í vonina um að gleypa tuðruna!

Og þá er það upptalið. Ég vissi ekki að ég ætti svona marga aðdáendur! Best að fara að hringja í þá og senda þeim ástarbréf með ilmvatnstssi...

þangað til næst,
ykkar einlæg

guðrúnsóley


ps. ný könnun fylgir i kjölfarið, endilega kjósa
09. júlí 2006 klukkan 03:27
Hverjar
Engin athugasemd
08júlí

Grænmeti?



Yoyo

bara láta vita að ég er að reyna að koma einhverjum af þessum Lanzarote myndum inná NÝJU MYNDASÍÐUNA MÍNA sem þið komist inná með því að klikka hér

annars er ég ógeðslega fúl núna. Var búin að fá jákvætt svar á það að fara til huldu og hilmars en nei, það brást...og þess vegna er ég hér, föst í þessum vinnum mínum og græt mig í svefn á kvöldin

fékk þó líka gleðifréttir í gær og þær eru að dadadaaaa ég er að fara til köben núna í lok sumars og versla. 98 second hand búðir takk fyrir!!

aaaaa ég HATA vinnuna mína. Og framundan er lööööööng og ströööööng vinnuhelgi. Ef einhver kann skjót ráð við því að verða veik mjög skyndilega af dularfullum sjúkdómi þá má hann endilega hafa samaband...

góða nótt
-guðrúnsóley


þið veltið því kannski fyrir ykkur af hverju ég sé með mynd af dúfu en dúdúú svarið er að finna á myndasíðunni með því að smella á dúfumyndina! Ég kýs að kalla hann Harald.

08. júlí 2006 klukkan 04:21
Hverjar
Engin athugasemd
30júní

Dreaddy Dreaddy!!!

Jájájájájájááááá!!!

http://www.knottyboy.com/learn/stepbystep.php

næsta sumar beibí, næsta sumar.

þangað til þarf ég bara að halda áfram að safna og dilla mér við Bob Marley

er staðráðin í því að gera þetta og dæmi hver og einn;

KnottyJim fyrir;
http://jimboslocks.photosite.com/locks/100_0382.html

og eftir; http://jimboslocks.photosite.com/locks/dread53.html
http://jimboslocks.photosite.com/locks/dreds27.html


og hann gerði þetta sjálfur...eða konan hans



....vildi að ég ætti kall

gs

30. júní 2006 klukkan 22:10
Hverjar
Engin athugasemd

Auglýsing

Könnun

Eigum við að reyna að halda lífinu í síðunni eða er þetta bara búið?

Ljóð dagins

Dagur

dagurinn í dag
var morgundagurinn í gær
og gærdagurinn á morgun
en sá dagur verður dagurinn í dag
og dagurinn á morgun



Guðrún Sóley snillingur

Dirty Dancing...









Leikfélagslagið



sumarlagið



Johnny Cash



















Ray Charles










Pulp Fiction





Tímon og Púmba



Um okkur

Við erum allar alveg fáránlega fallegar, göngum allar í MH og búum allar í Hafnarfirði.

Í einu orði sagt: GRÓFAR GELLUR!!!

Leit